Gætu lagazt með vænni ístru

Punktar

Kompás hefur myndskeið, þar sem Benjamín Þór Þorgrímsson einkaþjálfari frá Ólafsvík lemur veitingamann eins og harðfisk. Benjamín tókst ekki að fá lögbann á birtingu. Saksóknari hefur ákært annan einkaþjálfara, Arnar Grant, fyrir að brjóta rúðu í bíl, sem var fyrir honum. Þetta kemur mér ekki á óvart. Einkaþjálfarar hafa alltaf verið framarlega í handrukkunum og nauðgunum. Þeir virðast of uppteknir af sjálfum sér og óeðlilegu útliti sínu. Ég man eftir rugludöllum, sem voru í Atlaskerfinu fyrir hálfri öld. Voru allt ógæfumenn. Slíkir gætu lagazt, ef þeir fengju sér væna ístru.