Nauðsynlegt er að fella Gunnar Pál Pálsson, formann VR. Hann er orðinn að sameiningartákni græðginnar. Tók sér óheyrilegar fjárhæðir fyrir að sólunda eignum lífeyrisþega. Enn hærri fjárhæðir fyrir að losa yfirmenn Kaupþings við skuldir sínar. Slíkt er ekki gert fyrir fólk með lífeyri eða í félaginu. Gunnar Páll hefur barizt fyrir hagsmunum útrásargreifa og krosseignarfélaga, gegn hagsmunum umbjóðenda sinna. Hann er sá maður í landinu, sem sízt ætti að vera formaður stéttarfélags og lífeyrissjóðs. Það verður til marks um eymd almennings, ef hann sigrar aftur í atkvæðagreiðslu í VR. Kjósið Lúðvík.