Greifar án viðskiptavildar

Punktar

Kvótagreifar eru komnir á flótta undan fyrningu kvótans. Þeir bjóða núna samstarf við stjórnvöld um takmarkað leiguframsal kvótans. Ríkisstjórnin er hins vegar einhuga um fyrningarleiðina. Hún á ekki að hlusta á kvótagreifa. Enginn þarf á þeim að halda. Sjávarútvegurinn er ekki kvótagreifar, heldur skip, skipstjórar og sjómenn. Kvótagreifar eru bara afætur á kerfinu. Þeir hafa hrifsað til sín þjóðareignina og veðsett hana. Þeir eiga ekki inni neina viðskiptavild hjá kjósendum. Þeir eiga skilið að missa kvótann og munu missa hann, annað hvort með innköllun á veðum eða með fyrningu kvótans.