Losnaðu við bloggþvaðrið

Punktar

Er sífellt að hitta fólk, sem kann ekki að grisja blogg. Finnst það vera að drukkna í þvaðri. Lausnin er einföld. Farðu á blogg.gattin.is. Efst til vinstri er hnappur: “Búa til minn lista”. Ýttu á hann, fylltu út eyðublað, sem opnast. Þú færð upp stjórnborð, þar sem skráðir eru allir nafngreindir bloggarar landsins, hver undir sínum bókstaf. Það eru nokkur hundruð manns. Hakaðu við þá, sem þú vilt lesa. Ýttu á hnapp efst til vinstri, sem heitir: “Birta minn lista”. Þá færðu lista yfir nýjustu blogg þeirra, sem þú vilt lesa. Þú getur alltaf breytt listanum með því að fara aftur í stjórnborðið.