Vant viðbúin ríkisstjórn

Punktar

Einkenni ríkisstjórnarinnar er, að hún tekur ekki á málum, heldur lætur þau springa framan í sig. Gerir þá eitthvað í óðagoti. IceSave sprakk ítrekað í andlit hennar. Alltaf tók hún sig saman í andlitinu í óðagoti. Magma sprakk framan í ríkisstjórnina og fyrningarleiðin gerði það. Magma var þá ýtt inn í framtíðina, koma tímar koma ráð. Fyrningarleiðin hefur enn ekki fengið sitt óðagot. Gengisvextir springa ítrekað í andlit stjórnarinnar. Jón Bjarnason springur vikulega í fésið á henni. Síðast sprakk Gylfi Magnússon framan í ríkisstjórnina. Ævinlega koma viðbrögð fólksins henni gersamlega á óvart.