Miklar eru þjáningar Íslendinga vegna hrunsins, kannski þúsund milljarðar að IceSave meðtöldu. Þó smámunir í samanburði við þjáningar útlendinga, sem nema sjö þúsund milljörðum króna. Rosaleg tala. Við erum ekki beðin um að borga allt tjón Davíðs, bankstera og fjárglæframanna. Bara brot. Samt er hrunið þjóðinni að kenna. Hún kaus Davíð og aðra heimska hrokagikki til valda. Hún endurkaus hrunverjana. Í ljósi þess er vel sloppið að borga ekki nema eitt þúsund milljarða af sjö þúsund milljörðum hrunsins. Hættið því að væla, þetta er ykkur sjálfum að kenna. Bítið á jaxlinn og borgið skattana.