Siðsamleg kosningabarátta

Punktar

Siðsamleg er kosningabaráttan fyrir stjórnlagaþing. Auglýsingastofur munu tæpast fitna. Að mestu er hún háð á fésbók. Frambjóðendur láta þar að sér kveða og gerast vinir allra eins og gengur. Sáralítið er þar auglýst, enda er umræða um auglýsingar frambjóðenda að mestu neikvæð. Bloggið er miklu rólegra en fésbókin. Svipan var fjölmiðla fyrst á vettvang á skipulegan hátt. Nú hefur DV.is bætt um betur með aðgengilegum greinum frambjóðenda og svörum við ófullnægjandi spurningalista. Hefðbundnir fjölmiðlar tvístíga. Kjörstjórn sendi okkur þykkt og gagnlegt dreifirit um alla frambjóðendur.