Löggan hefur áhyggjur af, að tölvan, sem fannst hjá Alþingi, sé af sömu gerð og tölva, sem notuð var við gagnastuld. Rétt eins það skipti einhverju máli. Eru eigendur Ford-bíla sí og æ grunaðir, ef eitt sinn var notaður Ford við innbrot? Eru eigendur svissneskra herhnífa sí og æ grunaðir, ef eitt sinn var notaður svissneskur herhnífur? Það er bara rugl. Löggunni er ekki gefið að draga ályktanir. Jafnvel ekki á æðstu stöðum. Hún dreifir grunsemdum um samfélagið eins og sápukúlublásari. Svo er þessi ofmannaða stétt sífellt að heimta hærra kaup og fleiri ónýta starfskrafta. Þetta eru bara bjöllusauðir.