Óþolandi framkoma Ögmundar

Punktar

Óþolandi framkoma Ögmundar Jónassonar ráðherra og Lilu Mósesdóttur þingmanns í garð Jóhönnu Sigurðardóttur verður afdrifarík. Ríkisstjórnin verður að treysta þeim mun meira á stuðning þjóðhættulegra þingmanna á borð við Björn Val Gíslason. Hann er starfsmaður kvótagreifa, rekur erindi þeirra á þingi. Eins og raunar hrunverjar stjórnarandstöðunnar gera flestir. Enn á nýrri öld haga kvótagreifar sér eins og eigendur þjóðarinnar. Halda úti dagblaði á kostnað Landsbankans og þar með þjóðarinnar. Halda úti Sjálfstæðisflokknum fjárhagslega. Óróadeild vinstri grænna auðveldar bófunum ætlunarverk þeirra.