Skemmtilegir siðblindingjar

Punktar

Orðið siðblinda hefur ratað í umræðuna upp á síðkastið. Merkur sjúkdómur, sem hefur öðlast vísindalegan sess. Þar á ofan eru sumar tegundir siðblindu taldar vera ættgengar, sem er enn forvitnilegra. Athyglisverðast er þó, að siðblindingjar eru hvers manns hugljúfi, skemmtilegir og atkvæðamiklir. Þeir sækjast eftir leiðtogastörfum, einkum í viðskiptum og stjórnmálum. Þar er oft skammt milli glæpa og snilli og oftast er þar létt að halda siðblindunni leyndri. Íslenzka hrunið gerðist meira eða minna vegna siðblindu í pólitík og fjármálum. Gaman væri að velta fyrir sér núverandi stöðu siðblindunnar.