Skelfilegur Exeter-dómur

Punktar

Dómurinn í Exeter málinu er hreint út sagt skelfilegur. Er rothögg fyrir sérstakan saksóknara og þjóðina alla. Senn upp fyrir okkur, að dómstólar landsins munu sýkna alla helztu bófa landsins. Í þessu tilviki máttu þeir níðast á hluthöfum og skattgreiðendum með umboðssvikum og peningaþvotti. Aðeins einn dómari vildi skilja svindlið í málinu, en hann var í minnihluta. Þegar upp er staðið, verður þjóðin orðin sótsvört af bræði. Kerfið er bara svona. Ólafur Helgi sýslumaður heldur verndarhendi yfir barnanauðgara á sama tíma og dómstólar taka krók á sig til að vernda mestu ofurbófa landsins.