Strauss-Kahn saklaus?

Punktar

Ákæran er að bila gegn Dominique Strauss-Kahn fyrir kynferðislegt ofbeldi á hóteli í New York. Komið hefur í ljós símtal þernunnar, sem bendir til, að hún hafi rætt fjárhagslegan ávinning af kærunni. Einnig hafa komið í ljós grunsamlegar greiðslur inn á reikning hennar. Talið er víst, að hann verði leystur úr stofufangelsi og tryggingarfjárhæð hans snarlækkuð. Lögmenn hans og hennar ræða nú dómsátt í málinu. Sáttin gæti þó stafað af vilja þernunnar til að fá minna fé strax, frekar en meira fé síðar. Altjend er þó ljóst, að lögreglan í New York telur sig ekki lengur vera með pottþétt mál í höndunum.