Bófaflokkurinn afneitar

Punktar

Sjálfstæðisflokkurinn olli mér og öðrum Íslendingum gífurlegu fjárhagstjóni með hruninu. Flokkurinn hefur hvorki beðið mig né aðra Íslendinga afsökunar á þessu tjóni. Geir Haarde bað Flokkinn afsökunar á landsfundi, en þjóðina ekki. Á þingi er fjöldi þingmanna Flokksins, sem var á þingi fyrir hrun og ber ábyrgð á hruninu. Enginn þeirra hefur beðizt afsökunar. Allir rífa þeir kjaft. Kenna eftirmönnum sínum um hrunið. Hælast um, að sannleiksskýrsla Alþingis valdi sér bara tímabundnum erfiðleikum. Þetta er bófaflokkur, gerður út af samtökum kvótagreifa. Kjósendum ber skylda til að refsa honum.