Gera gæludýrunum gott

Punktar

Ríkisstjórnin leggur aukið fé í rekstur ríkisstjórnarinnar sjálfrar og gerir gæludýrunum gott. Kvótagreifar fá afslátt af auðlindarentu og makrílkvóta. Auðgreifar fá afnám auðlegðarskatts. Tekjuháir fá afslátt af skatti vegna húsnæðisskulda. Bræðslur fá tombóluverð á raforku. Á móti kemur eyðilegging Landspítalans og Ríkisútvarpsins og stórfelldur samdráttur í heilsugæzlu og menntun. Kjósendum Sjálfstæðisflokksins kemur þetta ekki á óvart, flokkurinn hótaði slíku fyrir kosningar. Sumum kjósendum Framsóknar bregður hins vegar, þeim sem trúðu innantómum loforðum. Þeir fá ný loforð fyrir næstu kosningar.