Hef sannfærzt um, að undanþágur og sérlausnir eru á hverju strái í Evrópu. Sambandið er alltaf til í að toga og teygja texta til að ná samkomulagi. Hef hins vegar engan áhuga á undanþágum og sérlausnum. Eru bara fríðindi fyrir sérhagsmunaðila, er hafa kúgað þjóðina og stolið auðlindum hennar. Þeir eiga ekkert gott skilið. Vil hins vegar betri lífskjör, meira svigrúm á hæfilega stórum markaði. Allra helzt vil ég, að eignir og tekjur haldi verðgildi. Séu ekki skertar með reglulegu millibili, þegar krónan hrynur. Ég vil losna við krónuna og helzt vil ég losna við gerræði siðblindra pólitíkusa íslenzkra.