Vinstri grænir þreytast ekki á að glæða lífið litum með innbyrðis mannvígum. Borgarfulltrúinn varði sætið með eins atkvæðis mun. Svo er varafulltrúi hans kominn í efsta sæti hjá öðrum flokki. Þannig má segja nokkuð frjálslega, að flokkurinn sé þríklofinn í Reykjavík. Sællar minningar var mikill hanaslagur í VG í tíð síðustu ríkisstjórnar. Þá flúðu nokkrir þingmenn flokksins heim til Framsóknar, þar sem betra svigrúm er fyrir greindarskort. Ögmundur er þó enn í flokknum, hverju sem það sætir. Er hann ekki í Dögun? Flokkar, sem vilja starfa með VG, verða að gera ráð fyrir hliðarsporum hinna óstjórntæku.