Nú hefnir það sín að hafa blekkt þjóðina til andstöðu við aðild að Evrópu. Ruglið í hatrinu á Evrópu var svo afkáralegt, að fólk er smám saman að átta sig. Með framhaldi þessarar ríkisstjórnar verður stuðningurinn við Evrópu kominn í meirihluta á kjörtímabilinu. Fólk trúir ekki lengur mögnuðu rugli um, að eldhaf geisi í Evrópu. Að þar gangi allt á afturfótunum og evran sé að syngja sitt síðasta. Á sama tíma eflist gengi evrunnar. Fólk trúir ekki lengur, að Þjóðverjar séu að ginna okkur með eldvatni og glerperlum. Fólk trúir ekki lengur afdalamennsku og úteyjamennsku íslenzkra afturkarla.