Þjóðareign auðlinda hefur með handafli verið breytt í eignarhald kvótagreifa. Atlaga kvótagreifanna í Vísi hf. að byggð á Djúpavogi, Húsavík og Þingeyri er gott dæmi. Þeir flytja rekstur eins og hendi sé veifað, í þessu tilviki til Grindavíkur. Næst flytja þeir annað og leggja Grindavík líka í rúst. Að baki þessa er sú staðreynd, sem Indriði Þorláksson hefur bent á: „Þjóðin greiðir sinn eigin heilaþvott“. Hún hefur stutt pólitíkusa og flokka, sem eindregið taka hagsmuni greifanna fram yfir almenning. Þessum blóðsugum verður þjóðin að hafna með því að varpa Flokknum og Framsókn og bófum þeirra í yztu myrkur.