Svei ykkur kjósendur

Punktar

Ríkisstjórn og meirihluti alþingis eru í þann veginn að létta rúmum milljarði af skattbyrði kveinandi kvótagreifa. Ofan á skattfríðindi í upphafi ferils ríkisstjórnarinnar. Þessi milljarður er akkúrat það sem vantar til að lina sárustu vandræðin í heilbrigðiskerfinu. Enn ein staðfesting þess, að greifar eru í forgangi og aumingjar í afgangi. Þetta er ríkisstjórn hinna voldugu í þágu hinna ríkustu. Svei ykkur kjósendur, sem siguðu þessu skrímsli á okkur. Mikil er skömm ykkur og svívirða. Þið eruð samsekir í glæpaverkum pólitíkusa, sem ganga eingöngu erinda þeirra, sem borguðu kosningabaráttu bófaflokkanna.