Óspilltir píratar

Punktar

Fjölmiðlar hafa ekki upplýst það. Ég segi því bara af hyggjuviti mínu, að þrír þingmenn Pírata eru einu þingmennirnir, sem hafna aðild að spillingu þingmanna. Hinir sextíu þingmennirnir njóta ýmissa fríðinda umfram aðra landsmenn, meðal annars skattaskjóls. Þurfa ekki einu sinni að skila kvittunum fyrir meintum útgjöldum í þágu þingsins. Þingmenn fá líka frí gleraugu og tannviðgerðir. Ekki er hægt að ætlast til, að þeir lifi lífi fólksins í landinu. Þetta er það, sem höfðingjarnir hafast að. Við hæfi er, að forsætis hafi forustu í spillingunni. Skráir sér búsetu á eyðibýli í Jökulsárhlíð. Og fær mökk af seðlum fyrir það.