Frá Sléttuvegi á Melrakkasléttu um Hófaskarð til Kollavíkur í Þistilfirði.
Lagður hefur verið bílvegur með slitlagi þessa leið. Því má líta svo á, að leiðin sé ekki lengur fær hestum.
Rétt sunnan Hófaskarðs eru þrjú önnur skörð í Fjallgarði, Bjarnaskarð, Kollavíkurskarð og Svalbarðsskarð, sem mest er farið.Förum frá eyðibýlinu Krossavíkurseli vestur um Hófaskarð í 220 metra hæð. Síðan suðvestur og niður heiðina og síðast vestur í Kollavík á Melrakkasléttu.
5,4 km
Þingeyjarsýslur
Ekki fyrir hesta
Nálægir ferlar: Fjallgarður.
Nálægar leiðir: Sléttuvegur, Hólaheiði, Kollavíkurskarð, Krossavík.
Skrásetjari: Jónas Kristjánsson
Heimild: Herforingjaráðskort