Skilji trúardrauma eftir

Punktar

Við eigum að flytja inn flóttafólk og munum gera það. Jafnframt þurfum við að skilja, að bókstafstrúaðir múslimar eiga erfitt með að laga sig að vestrænu samfélagi. Þeir verða eins og aðrir að fatta, að í Róm er maður sem Rómverji. Hvar sem við ferðumst um, þar lögum við okkur að siðum og venjum gistilandsins. Bókstafstrúaðir múslimar verða einnig að gera það. Ekki dugir að láta sig dreyma um sharia, karlrembu, feðraveldi og lægri skör kvenna. Slíkt gengur ekki hér. Jafnframt þarf að tryggja, að bókstafsklerkar gangi ekki í berhögg við helztu vestræn grunngildi. Við þurfum að vanda aðlögun og það kostar morð fjár.