Húsbændur hirða allt

Punktar

Bófaflokkar ríkisstjórnarinnar ganga ítrekað fram af venjulegu fólki. Misferli þeirra verður stærra og opnara með hverri viku. Eigi að síður styður þriðjungur þjóðarinnar bófaflokkana. Mér sýnist sem þessi þriðjungur sé skipaður nokkurs konar Orkum. Þeir skríða upp úr jörðinni á kjördegi. Bregðast ekki húsbændum sínum, þegar í harðbakkann slær. Ég mundi ekki vilja sitja til borðs með Orkum. Þeir gera Ísland óbyggilegt. Neita ungu láglaunafólki um mannsæmandi lífskjör. Af því stafar flóttinn til Noregs. Ríkasta þjóð í heimi vanrækir að rukka rentu af ótæmandi auðlindum sínum. Því Sauron og Saruman vilja hirða allt og fela.