Minnkum álag á starfsfólk Landspítalans. Kostar töluvert, má gerast í áföngum. Eyðum biðlistum eftir aðgerðum og plássi. Kostar töluvert, má gerast í áföngum. Tæknivæðum spítalann. Kostar töluvert, má gerast í áföngum. Byggjum mikið við spítalann. Kostar töluvert, má gerast í áföngum. Vitrænt væri að vinna eftir nokkurra ára áætlun. Að þeim tíma liðnum hafi sjúkraskýli í styrjaldarástandi endurfæðst í norrænum hátæknispítala. Til viðbótar afnemum við kostnaðarhlut sjúkra. Kostar töluvert, má gerast í áföngum. Dæmið allt fjármagnist með fullri auðlindarentu og endurheimtum auðlegðarskatti. Ekkert flókið mál, þýfið er til.