Fésbókarskrif vinstri grænna einkennast ekki af reiði, heldur harmi. Sem er mun alvarlegra mál. Flokkurinn er hvorki vinstri né grænn. Hann er þjóðvarnarflokkur, flokkur Möðruvellinga, flokkur fyrrverandi framsóknarfólks. Myndar þrenningu íhaldsflokka með Framsókn og Sjálfstæðis. Um leið taka vinstri græn inn á sig allan pólitíska bófaflokkinn. Fyrirhugað stjórnarsamkomulag er bara pappír, sem Sjálfstæðisflokkurinn mun hunza. Hefur alltaf hagað sér eins og honum þóknast. Og verður ekki siðvæddur með breiðu brosi. Ferðalag Katrínar mun hafa varanlegt krabbamein í farteskinu. Flokkseigendur spáðu ekki í harminn, sem lamar flokkinn.