Það er fjör í pólitíkinni á Seltjarnarnesi. Tveir eru í framboði um flest sæti, þar á meðal það efsta. Baráttan er tiltölulega hófsöm, lítill kostnaður á hvern frambjóðanda. Þeir hafa sent okkur fáorða bæklinga, þar sem í ljós kemur, að flestir hafa áhuga á málaflokkum barna og aldraðra. Ætla mætti að þetta væri prófkjör hjá Samfylkingunni, en það er raunar hjá Sjálfstæðisflokknum. Þar sem sá flokkur hefur frá söguöld verið með meirihluta á Nesinu, er þetta prófkjör áhrifameira en sjálfar kosningarnar verða.