SSkelfileg eru fyrirtækin, sem standa að baki ráðgerðrar olíuhreinsunar á Vestfjörðum. Gazprom og Lukoil eru rússnesk mafíufyrirtæki. ExxonMobil og Shell eru með verstu mengurum Vesturlanda. ExxonMobil heldur úti ýmsum gervistofnunum með gervivísindamönnum til að véfengja loftslagsvanda og mengun. Shell hefur rústað náttúru óshólmanna í Nígeríu og heldur úti bófaflokkum til að drepa innfædda. Samtals eru þessi fjögur fyrirtæki ein mesta ógnunin við framtíð mannkynsins á jörðinni. Útilokað er að sætta sig við, að Ólafur Egilsson, fyrrum sendiherra, dragi krabbameinið hingað.