Vesturlöndum er stjórnað af aumingjum, sem berja ekki í borðið. Þeir láta undan síga að hætti Neville Chamberlain. Hollenzkir ráðherrar segja, að óþarft sé að egna múslima. Sú skoðun endurspeglast víða, til dæmis hér á Íslandi. Jafnvel Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðinni, tyggur þessa möntru. En það þarf einmitt að ögra múslimum. Sýna fram á frumstæð sjónarmið meðal þjóða múslima. Benda á æpandi þögulan stuðning talsmanna vestrænna múslima við illmennsku á vegum Kóransins. Vesturlönd þurfa að stinga við fótum og hætta að fylgja undansláttarmönnum. Munið hann Hitler.