Brúnkukremað og andlitslyft

Punktar

Gamalmennið er brjóstumkennanlegt. Brúnkukremað og andlitslyft segir það fúla brandara um ljóskur. Brosið er frosið í bótoxi að hætti bandarísku kerlinganna, sem ég hitti á ráðstefnum ritstjóra í fyrndinni. Við spörum samúðina. Silvio Berlusconi er kominn til valda á Ítalíu í þriðja sinn. Þótt síðasta valdaskeið þjófsins hafi einkennzt af afturvirkum lögum til að bjarga honum sjálfum frá fangelsi. Hann er líka trúður. Economist ítrekar, að hann sé óhæfur til nokkurs embættis. Tímaritið segir slíkt ekki einu sinni um George W. Bush. Við skulum því vorkenna Ítölum, sem kusu trúðinn.