Ofbeldissinnar hafa flykkzt í lögguna. Hún er athvarf ungmenna, sem annars lentu á glapstigum. Þetta fólk hefur vænisjúkt hugarfar fasista. Það lítur á samfélagið sem lögguna annars vegar og pakkið hins vegar. Fasistarnir blómstra í löggunni í skjóli ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðherra, sem elskar lögguofbeldi í bíó. Fasistarnir vilja komast í sérsveitir, þar sem þeir geta efnt til lögregluóeirða. Gegn heiðvirðu fólki á borð við Amnesty og náttúruvini, Falung Gong og vörubílstjóra. Þeir hafa fengið pipargas og heimta morðvopn, rafbyssur, sem drepið hafa 245 manns. Þeir eru fráleitir.