Stofnunin með steinhjartað

Punktar

Samkvæmt vefnum eru 28 starfsmenn hjá Útlendingastofnun. Þeir starfa ekki, því að stofnunin segir bara nei. Til þess þarf ekki 28 starfsmenn. Hún notar þrönga túlkun lagarammans til að segja nei. Ekkert nema nei. Hún skilar ekki einu sinni umsögnum. Notar ekki undanþágur, sem leyfðar eru í lögum. Jafnframt er hún spillt, ef ráðherra þarf prívatþjónustu fyrir sig, samanber Jónínu Bjartmarz. Útlendingastofnun er ekki málefnaleg stofnun, sem ráðherra getur haft sér til skjóls. Er sérhönnuð fyrir Björn Bjarnason, starfar í samræmi við steinhjarta hans. Burt með stofnunina og ráðherrann.