Skæruliðarnir eru komnir

Punktar

Fyrstu skæruliðarnir eru komnir á Kaldbak. Sá tvílembu þjóta heimreiðina í dag. Þessi stefnir ótrauð eftir veginum til Þverspyrnu. Hún var af kyni, sem harðast hefur verið ræktað undanfarna áratugi. Leitar að girðingum til að troðast gegnum, ristarhliðum til að stökkva yfir, stórfljótum til að synda yfir. Þykir fyrirtak hjá landlausum bændum, sem sturta þeim á einskis manns land. Er ekki hægt að selja svona rollur til herja heimsveldanna? Vantar þar ekki einhvern, sem getur troðist þangað, sem engir aðrir komast? Er ekki hægt að nota svona sauðfé í sjálfsmorðsárásum í Langtburtistan?