|
|
Punktar
|
06.09.2010
Sjá goðumlíka glæpamenn
Höskuldur H Ólafsson bankastjóri hefur ekki hugmynd um siðferði. Ekki frekar en forveri hans hjá Arion-banka. Ekki frekar en aðrir þeir, sem hafa verið bankastjórar eftir hrun. Í skjóli skilningsleysis Steingríms J. Sigfússonar og Gylfa Magnússonar. Allir bankastjórarnir ögra þjóðinni með því að mylja undir mestu fjárglæframenn landsins umfram aðra. Þeir eru siðlausir, því að þeir eru bankamenn og siðferði er þeim lokuð bók. Ekki má ráða bankamenn sem bankastjóra, heldur á að setja þar inn heimspekinga og siðfræðinga. Þar á að vera fólk, sem fær enga glýju í augu við að horfa á goðumlíka stórglæpamenn.
|
|
06.09.2010
Fullyrðing um einelti
Hef ekki séð dæmi um einelti fjölmiðla í garð þjóðkirkjunnar, sem Örn Bárður Jónsson prestur fullyrti. Þyrfti fyrst að sjá eitt dæmi. Enn síður sé ég, að fjölmiðlar hafi fjallað óvandað um siðferðisbrenglun kirkjunnar. Hún á bara að passa sig betur. Örn Bárður getur sagt upp fjölmiðlum öðrum en Ríkinu og býður því fávíslegan brandara um það efni. Menn geta hafnað fjölmiðlum rétt eins og ríkiskirkjunni. Fjölmiðlar hafa flutt eðlilegar skoðanir um, að Karl biskup Sigurbjörnsson segi af sér. Hefur höndlað siðferðisbrenglun kirkjunnar heimskulega og hrakið fólk burt. Örn Bárður er bara alls ekki með á nótunum.
|
|
05.09.2010
Fyrsta verk nýs ráðherra
Fyrsta verk Árna Páls Árnasonar bankaráðherra ætti að vera að höfða mál gegn skilanefndarmönnum og slitastjórnarmönnum. Fyrr stórtækan þjófnað á fé, sem þeim var trúað fyrir. Þeir hafa tekið sér margföld laun á við það, sem þolanlegt er talið í gjaldþrota þjóðfélagi. Þetta er stærsti þjófnaðurinn á Íslandi eftir hrunið. Engu máli skiptir, hvort bófarnir stela af útlendingum eða Íslendingum. Þjófnaður er alltaf þjófnaður. Miklu skiptir, að siðlausir bófar komist ekki upp með glæpi. Því verður að höfða mál. Ef Árni Páll gerir ekkert, vitum við hvers vegna. Hann er nefnilega sjálfur siðlaus, greyið.
|
|
05.09.2010
Ríkisritskoðun Katrínar
Undarleg eru fyrirhuguð fjölmiðlalög Katrínar Jakobsdóttur. Tengjast vinstri áráttu miðstýringar hugarfars. Lögin banna grófar skoðanir, "sem kynda undir hatri". Það er orðalag, sem Stóri bróðir elskar að misnota. Betra er að hafa engar reglur um skoðanir og framsetningu þeirra. Lögin stofna ríkisritskoðun undir heitinu Fjölmiðlastofa. Hún á að boða og banna og beita viðurlögum án þess að áfrýja megi úrskurðum. Af hverju má ekki lasta Múhameð spámann eða Katrínu Jakobsdóttur? Af hverju má ekki segja Vinstri græna útúr-spillta og þjóðkirkjuna undir áhrifum myrkrahöfðingjans? Katrín er úlfur í sauðargæru.
|
|
05.09.2010
Hrunverjar vaða uppi
Mér verður daglega óglatt, þegar Alþingi er komið saman. Hrunverjar stíga þar daglega upp í pontu og kvarta yfir afleiðingum sinna eigin gerða. Saka ríkisstjórnina um atvinnuleysi, sem hrunverjar bjuggu til. Saka hana um samdrátt landsframleiðslu, sem hrunverjar bjuggu til. Kvarta yfir viðræðum um IceSave, sem þeir ábyrgðust á sínum tíma. Viðbjóðslegt er að sjá Tryggva Þór Herbertsson og Einar K. Guðfinnsson bölsótast yfir eigin verki og kenna öðrum um. Átakanlegast er þó, að sjá þriðjung þjóðarinnar styðja hrunverja. Ógeðskarlar hossa sér auðvitað á þjóð, sem þjáist af gullfiskaminni.
|
|
05.09.2010
Fjallmenn í vöfflukaffi
Kátt var á Kaldbaki í hádeginu í gær. Samkvæmt hefð hófu fjallmenn sex daga leitir hér í vöfflukaffi. Kindum fækkar og fjallmönnum fjölgar. Fleira fólk en fé verður í Hrunarétt á föstudaginn kemur. Hér höfðu menn þrjá til reiðar og hafa kokk með sér á fjöllum. Veðurspáin er góð, bara skúrir, hiti góður og engin þoka, sem er allra bezt. Munur er að vera fjallmaður í dag. Alls staðar eru góðir fjallaskálar, jafnvel með klósetti. Og það er munur að vera hestur í leitum, þegar menn hafa þrjá til reiðar. Í gamla daga létu menn sér einn nægja, enda urðu hestar snemma gamlir. Núna eru þeir allir hressir.
|
|
04.09.2010
Kerfið sýnir þér fingurinn daglega
Hver staðfestingin rekur aðra. Bankar, skilanefndir og slitastjórnir elska fjárglæframenn og hata almenning. Mestu glæpamenn þjóðarinnar fá alls kyns fyrirgreiðslu, sem almenningur fær ekki. Björgólfur Thor fær felldar niður ábyrgðir upp á tugi milljarða. Reyndu það sjálfur. Jón Ásgeir fær vandamál sín fryst til langs tíma. Reyndu það sjálfur. Munur á gömlum bankaskúrkum og nýjum er enginn. Moka þarf öllum forstjórum og millistjórum út úr bönkunum. Öllum. Ríkisstjórnin reyndi ekki par að siðvæða fjármálin. Kerfið sýnir þér fingurinn daglega. Á skerinu mun ekkert lagast fyrr en í blóðugri byltingu.
|
|
04.09.2010
Íslendingar eru glæpaþjóð
Mistökin í IceSave voru tvenn. Í fyrsta lagi settu Geir og Ingibjörg með stuðningi Davíðs neyðarlög, sem tryggðu innlendar innistæður að fullu, en engar erlendar. Það gerði Bretland brjálað og leiddi til, að Geir, Ingibjörg og Davíð samþykktu IceSave. Útlönd töldu samt, að Ísland væri skálkaskjól glæpamanna. Síðan komu landráðamenn og æstu örvitana til að hafna IceSave í þjóðaratkvæðagreiðslu. Voru mistök númer tvö, sýnu verri en hin fyrri. Þá sannfærðust útlönd endanlega um, að þjóðin í heild væri glæpaþjóð. Sú skoðun gildir enn, enda rétt. Því fáum við engin lán í útlöndum um ófyrirséða tíð.
|
|
04.09.2010
Formenn valta yfir skýrslu
Fjórflokkurinn hefur ekkert lært af hruninu og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hún benti á siðlaus tengsl stjórnmála og fjármála sem meginvanda. Samt semja formenn hans um að varðveita leynd yfir fjármálum pólitíkusa og flokka. Framlög mega áfram vera nafnlaus upp á fjárhæðir, sem nema hundruðum þúsunda. Listinn fæst ekki birtur fyrr en eftir dúk og disk. Bandaríkjamenn eru engir englar, en þar er daglega birtur listi um öll framlög til flokka, frambjóðenda, samtaka. Öll. Fólk getur því tekið mið af upplýsingunum fyrir kosningar, ekki bara löngu síðar. En hér er sami skíturinn og jafnan áður.
|
|
04.09.2010
Útsvör tvöfaldist í Keflavík
Árni Sigfússon er einstæður gaur. Hirti fasteignir Keflavíkur og afhenti til einkafyrirtækis, þar sem hann sjálfur er formaður. Lætur hreppinn svo borga leigu til einkafyrirtækisins, þótt útsvörin standi ekki undir því. Smíðar höfn í Helguvík fyrir meira en milljarð í von um orku í álver. Lætur tveggja milljarða erlent lán gjaldfalla á hreppinn. Reisir steintröll Árna frænda Johnsen út um alla móa. Var svo endurkosinn. Enginn vill taka Keflavík að sér frekar en Garðabær vill Álftanes. Ríkið hefur ekki ráð á því. Útsvör í Keflavík verða því að tvöfaldast til að standa undir Árna og kjósendum hans.
|
|
03.09.2010
Böndin berast að Jóni
Steingrínur J. Sigfússon biðst afsökunar á of fáum konum í ríkisstjórninni. Lofar að bæta fljótt úr því. Hann fær tækifæri til þess um áramótin, þegar aftur verður stokkað upp í stjórninni. Hann hefur upp á þrjá stóla að bjóða, stól sinn, stól Ögmundar og stól Jóns Bjarnasonar. Varla býður hann sinn stól, sjálfur hornsteinn ríkisstjórnarinnar. Varla býður hann stól Ögmundar, sem á að vera nýja límið í þingmeirihlutanum. Böndin berast því að Jóni, sem er óvinsælasti ráðherrann síðan Kristján Möller hvarf af vettvangi. Jón er höfuðóvinur neytenda og ber ábyrgð á hnút, sem kominn er á fyrningu kvótans.
|
|
03.09.2010
Sérfræðingurinn í glansmyndum
Auðvitað tek ég mark á því, þegar Tryggvi Þór Herbertsson ræðir á Alþingi um glansmynd af efnahags- og fjármálum. Hann er sérfræðingurinn í glansmyndum. Hafandi skrifað margar glæstar glansmyndir undir dulnefninu Hagfræðistofnun háskólans samdi hann frægustu glansmynd allra tíma. Hún kom út rétt fyrir hrunið og fjallaði um, hversu frábær og traust væru íslenzk efnahags- og fjármál. Ég sakna þess, að hrunverjinn skuli ekki vitna í þá frægu skýrslu, þegar hann fjallar á Alþingi um glansmyndir. En hann er auðvitað haldinn sama sjúkdómi og Einar Guðfinnson. Þeim finnst heimurinn hafa byrjað 2009.
|
|
03.09.2010
Sölvi og Samfylkingin
Sölvi Tryggvason bloggar vel í dag um svik Tony Blair við jafnaðarstefnu. Bendir á samhengið við Bill Clinton, sem líka var úlfur í sauðargæru. Afnam bremsur og varnagla við gróðafíkn bankstera. Bill og Tony voru höfuðpaurar blöðrunnar, sem sprakk með hruni nokkurra banka í höfuðríkjum engilsaxa. Þeir komust þó ekki í hálfkvisti við Davíð Oddsson og Sjálfstæðisflokkinn. Frjálshyggjan hér felldi alla íslenzku bankana og hálfa þjóðina. En Sölvi bendir líka á, að New Labour er enn fast í hugarheimi íslenzkra krata, sem bera samábyrgð á hruninu. Samfylkingin hefur enn ekki gert upp fortíð sína.
|
|
03.09.2010
Fjárglæframenn í Keili
Fjárglæframenn eru víða enn á kreiki. Ríkisendurskoðun segir frá misferli ráðamanna Keilis á Keflavíkurvelli. Þeir eru Hjálmar Árnason, fyrrverandi þingmaður Framsóknar, og Runólfur Ágústsson, sem setti Bifröst á hausinn. Tóku 236 milljónirnar frá ríkinu 2008-2009 og notuðu í annað en tilskilið var. Þar með brutu þeir samning við menntaráðuneytið og Háskóla Íslands. Sem forstjórar einkaskóla hafa þeir safnað 136 milljón króna halla. Ekki kemur til greina, að ríkið borgi. Ríkisendurskoðun segir, að Keili beri sjálfum að tryggja eigin rekstur og standa sem einkafyrirtæki skil á skuldbindingum.
|
|
03.09.2010
Kaldur veruleiki síast inn
Hinn kaldi veruleiki síast inn. Afar hægt, en síast samt. Íslendingar fá engin lán í útlöndum, því að við erum fyrirlitin. Talin vera bófar, sem vilji ekki borga skuldir. Engu máli skiptir, hvað er rétt og rangt í þeirri skoðun. Hún ræður samt ferðinni og það eitt gildir. Smám saman átta fleiri sig á, að IceSave er það, sem fælir útlendinga. Þess vegna fær Landsvirkjun ekki lán, þess vegna fær Orkuveitan ekki lán. Vegna þess að vandræðamenn æstu örvita landslýð upp í að hafna IceSave í þjóðaratkvæðagreiðslu. Kominn er tími til að ræða, hverjir eru hinir raunverulegu vandræðaamenn á Íslandi.
|
|
02.09.2010
Möller hefndi sín
Kristján Möller hefndi sín strax á Jóhönnu með því að leyfa Flugmálastjórn að gefa starfsleyfi fyrir herþotur. Laug, að Jóhanna hefði samþykkt þetta framhjá ríkisstjórnarfundi. Svona einkafundi framhjá stjórnkerfinu. Einmitt í gamla stílnum eins og þegar Davíð og Halldór fóru í stríð við Írak prívat og persónulega. Efast um, að nokkur þori að taka Kristján aftur í stjórn. Einkarekinn pólitíkus af gamla skólanum, reynir að fá sitt fram með frekju og yfirgangi. Hollusta hans er engin. Aðrir ráðherrar komu af fjöllum. Strax á morgun hlýtur Ögmundur að afturkalla þetta einka-flipp hins hefnigjarna.
|
|
02.09.2010
Furðufréttir fjárglæfra
Furðulegar fréttir berast. Skilanefnd Landsbankans afskrifar 27 milljarða persónulega ábyrgð Björgólfs Thor Björgólfssoar á skuldum sínum. Fyrir þá upphæð hefði mátt afskrifa öll gengistryggð bílalán almennings og hluta af íbúðalánum. Hreiðar Már Sigurðsson og Kristján Arason komast upp með að ganga frá kúlulánum sínum án þess að borga krónu. Jóhannes Jónsson í Bónus fær 115 milljónir að gjöf frá Kaupþingi fyrir að vera ekki með leiðindi. Hann var búinn að vinna svo lengi hjá Bónusi og er svo fínn gaur, útskýrði brjálaði bankastjórinn í sjónvarpi. Við vitum með hverjum hjarta hans slær.
|
|
02.09.2010
Árni Páll er svartur mínus
Jóhanna Sigurðardóttir fær þrjá plúsa í kladdann fyrir að reka Kristján Möller, Rögnu Árnadóttur og Gylfa Magnússon. Ekki bara óhæfir ráðherrar, heldur sköðuðu þau virðingu ríkisstjórnarinnar. Hún fær líka plús fyrir að fá Guðbjart Hannesson, sem hefur áður gert góða hluti. Jóhanna fær svo tvo mínusa fyrir að halda í Jón Bjarnason og Árna Pál Árnason, sem eru á sama plani og hinir brottreknu þrír. Svarti mínusinn er þó, að Árni Páll verður bankaráðherra. Hefur einmitt sýnt, að hann er hluti gamla og gerspillta Íslands, sálufélagi fjárglæframanna í bönkunum. Hann mun ekki siðvæða þá.
|
Næsta síða
Greinar sem á eftir að sýna: 8472
|
Kennslubók í blaðamennsku
Reglur Jónasar um stíl:
- Skrifaðu eins og fólk, ekki eins og fræðimenn.
- Settu sem víðast punkt og stóran staf.
- Strikaðu út óþörf orð, helmingaðu textann.
- Forðastu klisjur, þær voru sniðugar bara einu sinni.
- Keyrðu á sértæku sagnorði og notaðu sértækt frumlag.
- Notaðu stuttan, skýran og spennandi texta.
- Sparaðu lýsingarorð, atviksorð, þolmynd og viðtengingarhátt.
- Hafðu innganginn skýran og sértækan.
|
|
|
|