Meðan þjóðin fagnaði afmæli hins lítt umdeilda forseta síns, gat sýndarforseti auðgreifanna ekki tekið þátt. Ólafur Ragnar varð að vera í dinner til heiðurs stjórnendum góða bankans Goldman Sachs, helzta geranda bankahrunsins. Var þar í boði hins valinkunna Lakshmi Mittal, þrælahaldarans í ArcelorMittal. Oftast er Ólafur Ragnar þó í gilliboðum með helztu vinum mannréttinda á Arabíuskaga. Nema þegar hann er hjá öðlingunum Pútín eða Xi Jinping. Ólafur Ragnar kann að velja sér vini utan siðmenningar. Er enn í ruglinu frá 2007, þegar stjarna hans reis hæst sem merkisberi útrásarvíkinga. Hinn goðumlíki gróðursetur sko engin tré.