Ríki brjálæðinga

Punktar

Ísrael er ríki brjálæðinga. Hálf þjóðin hefur tryllst. Ekki bara hæstiréttur, ríkisstjórn og þingmenn. Ekki bara hálfur herinn. Sem heild er herinn orðinn verri en SS-sveitir nazista. Án tilefnis skjóta vitfirrtir hermenn ungabörn til bana, ráðast án tilefni á erlenda blaðamenn, berja þá og brjóta tæki. Ísrael hefur losað sig frá öllu, sem heitir mennska. Ríki og þjóð eru orðin að grimmu villidýri. Þetta er staðfest í erlendum fréttum dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár. Allt þetta er aðgengilegt á vefnum. Sumt fólk á Íslandi ber samt áfram blak af brjálæðinu og gerir sig þannig meðsekt.