Jonas Kristjansson http://www.jonas.is/ Jonas Kristjansson Sjá goðumlíka glæpamenn http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14136 Höskuldur H Ólafsson bankastjóri hefur ekki hugmynd um siðferði. Ekki frekar en forveri hans hjá Arion-banka. Ekki frekar en aðrir þeir, sem hafa verið bankastjórar eftir hrun. Í skjóli skilningsleysis Steingríms J. Sigfússonar og Gylfa Magnússonar. Allir bankastjórarnir ögra þjóðinni með því að mylja undir mestu fjárglæframenn landsins umfram aðra. Þeir eru siðlausir, því að þeir eru bankamenn og siðferði er þeim lokuð bók. Ekki má ráða bankamenn sem bankastjóra, heldur á að setja þar inn heimspekinga og siðfræðinga. Þar á að vera fólk, sem fær enga glýju í augu við að horfa á goðumlíka stórglæpamenn. 06 Sep 2010 09:06:02 GMT Fullyrðing um einelti http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14135 Hef ekki séð dæmi um einelti fjölmiðla í garð þjóðkirkjunnar, sem Örn Bárður Jónsson prestur fullyrti. Þyrfti fyrst að sjá eitt dæmi. Enn síður sé ég, að fjölmiðlar hafi fjallað óvandað um siðferðisbrenglun kirkjunnar. Hún á bara að passa sig betur. Örn Bárður getur sagt upp fjölmiðlum öðrum en Ríkinu og býður því fávíslegan brandara um það efni. Menn geta hafnað fjölmiðlum rétt eins og ríkiskirkjunni. Fjölmiðlar hafa flutt eðlilegar skoðanir um, að Karl biskup Sigurbjörnsson segi af sér. Hefur höndlað siðferðisbrenglun kirkjunnar heimskulega og hrakið fólk burt. Örn Bárður er bara alls ekki með á nótunum. 06 Sep 2010 07:46:13 GMT Fyrsta verk nýs ráðherra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14134 Fyrsta verk Árna Páls Árnasonar bankaráðherra ætti að vera að höfða mál gegn skilanefndarmönnum og slitastjórnarmönnum. Fyrr stórtækan þjófnað á fé, sem þeim var trúað fyrir. Þeir hafa tekið sér margföld laun á við það, sem þolanlegt er talið í gjaldþrota þjóðfélagi. Þetta er stærsti þjófnaðurinn á Íslandi eftir hrunið. Engu máli skiptir, hvort bófarnir stela af útlendingum eða Íslendingum. Þjófnaður er alltaf þjófnaður. Miklu skiptir, að siðlausir bófar komist ekki upp með glæpi. Því verður að höfða mál. Ef Árni Páll gerir ekkert, vitum við hvers vegna. Hann er nefnilega sjálfur siðlaus, greyið. 05 Sep 2010 18:40:44 GMT Ríkisritskoðun Katrínar http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14133 Undarleg eru fyrirhuguð fjölmiðlalög Katrínar Jakobsdóttur. Tengjast vinstri áráttu miðstýringar hugarfars. Lögin banna grófar skoðanir, "sem kynda undir hatri". Það er orðalag, sem Stóri bróðir elskar að misnota. Betra er að hafa engar reglur um skoðanir og framsetningu þeirra. Lögin stofna ríkisritskoðun undir heitinu Fjölmiðlastofa. Hún á að boða og banna og beita viðurlögum án þess að áfrýja megi úrskurðum. Af hverju má ekki lasta Múhameð spámann eða Katrínu Jakobsdóttur? Af hverju má ekki segja Vinstri græna útúr-spillta og þjóðkirkjuna undir áhrifum myrkrahöfðingjans? Katrín er úlfur í sauðargæru. 05 Sep 2010 13:43:50 GMT Hrunverjar vaða uppi http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14132 Mér verður daglega óglatt, þegar Alþingi er komið saman. Hrunverjar stíga þar daglega upp í pontu og kvarta yfir afleiðingum sinna eigin gerða. Saka ríkisstjórnina um atvinnuleysi, sem hrunverjar bjuggu til. Saka hana um samdrátt landsframleiðslu, sem hrunverjar bjuggu til. Kvarta yfir viðræðum um IceSave, sem þeir ábyrgðust á sínum tíma. Viðbjóðslegt er að sjá Tryggva Þór Herbertsson og Einar K. Guðfinnsson bölsótast yfir eigin verki og kenna öðrum um. Átakanlegast er þó, að sjá þriðjung þjóðarinnar styðja hrunverja. Ógeðskarlar hossa sér auðvitað á þjóð, sem þjáist af gullfiskaminni. 05 Sep 2010 09:07:21 GMT Fjallmenn í vöfflukaffi http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14131 Kátt var á Kaldbaki í hádeginu í gær. Samkvæmt hefð hófu fjallmenn sex daga leitir hér í vöfflukaffi. Kindum fækkar og fjallmönnum fjölgar. Fleira fólk en fé verður í Hrunarétt á föstudaginn kemur. Hér höfðu menn þrjá til reiðar og hafa kokk með sér á fjöllum. Veðurspáin er góð, bara skúrir, hiti góður og engin þoka, sem er allra bezt. Munur er að vera fjallmaður í dag. Alls staðar eru góðir fjallaskálar, jafnvel með klósetti. Og það er munur að vera hestur í leitum, þegar menn hafa þrjá til reiðar. Í gamla daga létu menn sér einn nægja, enda urðu hestar snemma gamlir. Núna eru þeir allir hressir. 05 Sep 2010 06:03:36 GMT Kerfið sýnir þér fingurinn daglega http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14130 Hver staðfestingin rekur aðra. Bankar, skilanefndir og slitastjórnir elska fjárglæframenn og hata almenning. Mestu glæpamenn þjóðarinnar fá alls kyns fyrirgreiðslu, sem almenningur fær ekki. Björgólfur Thor fær felldar niður ábyrgðir upp á tugi milljarða. Reyndu það sjálfur. Jón Ásgeir fær vandamál sín fryst til langs tíma. Reyndu það sjálfur. Munur á gömlum bankaskúrkum og nýjum er enginn. Moka þarf öllum forstjórum og millistjórum út úr bönkunum. Öllum. Ríkisstjórnin reyndi ekki par að siðvæða fjármálin. Kerfið sýnir þér fingurinn daglega. Á skerinu mun ekkert lagast fyrr en í blóðugri byltingu. 04 Sep 2010 19:13:05 GMT Íslendingar eru glæpaþjóð http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14129 Mistökin í IceSave voru tvenn. Í fyrsta lagi settu Geir og Ingibjörg með stuðningi Davíðs neyðarlög, sem tryggðu innlendar innistæður að fullu, en engar erlendar. Það gerði Bretland brjálað og leiddi til, að Geir, Ingibjörg og Davíð samþykktu IceSave. Útlönd töldu samt, að Ísland væri skálkaskjól glæpamanna. Síðan komu landráðamenn og æstu örvitana til að hafna IceSave í þjóðaratkvæðagreiðslu. Voru mistök númer tvö, sýnu verri en hin fyrri. Þá sannfærðust útlönd endanlega um, að þjóðin í heild væri glæpaþjóð. Sú skoðun gildir enn, enda rétt. Því fáum við engin lán í útlöndum um ófyrirséða tíð. 04 Sep 2010 14:30:29 GMT Formenn valta yfir skýrslu http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14128 Fjórflokkurinn hefur ekkert lært af hruninu og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hún benti á siðlaus tengsl stjórnmála og fjármála sem meginvanda. Samt semja formenn hans um að varðveita leynd yfir fjármálum pólitíkusa og flokka. Framlög mega áfram vera nafnlaus upp á fjárhæðir, sem nema hundruðum þúsunda. Listinn fæst ekki birtur fyrr en eftir dúk og disk. Bandaríkjamenn eru engir englar, en þar er daglega birtur listi um öll framlög til flokka, frambjóðenda, samtaka. Öll. Fólk getur því tekið mið af upplýsingunum fyrir kosningar, ekki bara löngu síðar. En hér er sami skíturinn og jafnan áður. 04 Sep 2010 09:46:22 GMT Útsvör tvöfaldist í Keflavík http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14127 Árni Sigfússon er einstæður gaur. Hirti fasteignir Keflavíkur og afhenti til einkafyrirtækis, þar sem hann sjálfur er formaður. Lætur hreppinn svo borga leigu til einkafyrirtækisins, þótt útsvörin standi ekki undir því. Smíðar höfn í Helguvík fyrir meira en milljarð í von um orku í álver. Lætur tveggja milljarða erlent lán gjaldfalla á hreppinn. Reisir steintröll Árna frænda Johnsen út um alla móa. Var svo endurkosinn. Enginn vill taka Keflavík að sér frekar en Garðabær vill Álftanes. Ríkið hefur ekki ráð á því. Útsvör í Keflavík verða því að tvöfaldast til að standa undir Árna og kjósendum hans. 04 Sep 2010 05:43:33 GMT Böndin berast að Jóni http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14126 Steingrínur J. Sigfússon biðst afsökunar á of fáum konum í ríkisstjórninni. Lofar að bæta fljótt úr því. Hann fær tækifæri til þess um áramótin, þegar aftur verður stokkað upp í stjórninni. Hann hefur upp á þrjá stóla að bjóða, stól sinn, stól Ögmundar og stól Jóns Bjarnasonar. Varla býður hann sinn stól, sjálfur hornsteinn ríkisstjórnarinnar. Varla býður hann stól Ögmundar, sem á að vera nýja límið í þingmeirihlutanum. Böndin berast því að Jóni, sem er óvinsælasti ráðherrann síðan Kristján Möller hvarf af vettvangi. Jón er höfuðóvinur neytenda og ber ábyrgð á hnút, sem kominn er á fyrningu kvótans. 03 Sep 2010 18:31:33 GMT Sérfræðingurinn í glansmyndum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14125 Auðvitað tek ég mark á því, þegar Tryggvi Þór Herbertsson ræðir á Alþingi um glansmynd af efnahags- og fjármálum. Hann er sérfræðingurinn í glansmyndum. Hafandi skrifað margar glæstar glansmyndir undir dulnefninu Hagfræðistofnun háskólans samdi hann frægustu glansmynd allra tíma. Hún kom út rétt fyrir hrunið og fjallaði um, hversu frábær og traust væru íslenzk efnahags- og fjármál. Ég sakna þess, að hrunverjinn skuli ekki vitna í þá frægu skýrslu, þegar hann fjallar á Alþingi um glansmyndir. En hann er auðvitað haldinn sama sjúkdómi og Einar Guðfinnson. Þeim finnst heimurinn hafa byrjað 2009. 03 Sep 2010 15:35:21 GMT Sölvi og Samfylkingin http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14124 <a href=http://www.pressan.is/pressupennar/LesaSolvaTryggvason/ulfur-i-saudagaeru >Sölvi Tryggvason</a> bloggar vel í dag um svik Tony Blair við jafnaðarstefnu. Bendir á samhengið við Bill Clinton, sem líka var úlfur í sauðargæru. Afnam bremsur og varnagla við gróðafíkn bankstera. Bill og Tony voru höfuðpaurar blöðrunnar, sem sprakk með hruni nokkurra banka í höfuðríkjum engilsaxa. Þeir komust þó ekki í hálfkvisti við Davíð Oddsson og Sjálfstæðisflokkinn. Frjálshyggjan hér felldi alla íslenzku bankana og hálfa þjóðina. En Sölvi bendir líka á, að New Labour er enn fast í hugarheimi íslenzkra krata, sem bera samábyrgð á hruninu. Samfylkingin hefur enn ekki gert upp fortíð sína. 03 Sep 2010 12:41:31 GMT Fjárglæframenn í Keili http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14123 Fjárglæframenn eru víða enn á kreiki. Ríkisendurskoðun segir frá misferli ráðamanna Keilis á Keflavíkurvelli. Þeir eru Hjálmar Árnason, fyrrverandi þingmaður Framsóknar, og Runólfur Ágústsson, sem setti Bifröst á hausinn. Tóku 236 milljónirnar frá ríkinu 2008-2009 og notuðu í annað en tilskilið var. Þar með brutu þeir samning við menntaráðuneytið og Háskóla Íslands. Sem forstjórar einkaskóla hafa þeir safnað 136 milljón króna halla. Ekki kemur til greina, að ríkið borgi. Ríkisendurskoðun segir, að Keili beri sjálfum að tryggja eigin rekstur og standa sem einkafyrirtæki skil á skuldbindingum. 03 Sep 2010 09:21:53 GMT Kaldur veruleiki síast inn http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14122 Hinn kaldi veruleiki síast inn. Afar hægt, en síast samt. Íslendingar fá engin lán í útlöndum, því að við erum fyrirlitin. Talin vera bófar, sem vilji ekki borga skuldir. Engu máli skiptir, hvað er rétt og rangt í þeirri skoðun. Hún ræður samt ferðinni og það eitt gildir. Smám saman átta fleiri sig á, að IceSave er það, sem fælir útlendinga. Þess vegna fær Landsvirkjun ekki lán, þess vegna fær Orkuveitan ekki lán. Vegna þess að vandræðamenn æstu örvita landslýð upp í að hafna IceSave í þjóðaratkvæðagreiðslu. Kominn er tími til að ræða, hverjir eru hinir raunverulegu vandræðaamenn á Íslandi. 03 Sep 2010 05:39:19 GMT Möller hefndi sín http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14121 Kristján Möller hefndi sín strax á Jóhönnu með því að leyfa Flugmálastjórn að gefa starfsleyfi fyrir herþotur. Laug, að Jóhanna hefði samþykkt þetta framhjá ríkisstjórnarfundi. Svona einkafundi framhjá stjórnkerfinu. Einmitt í gamla stílnum eins og þegar Davíð og Halldór fóru í stríð við Írak prívat og persónulega. Efast um, að nokkur þori að taka Kristján aftur í stjórn. Einkarekinn pólitíkus af gamla skólanum, reynir að fá sitt fram með frekju og yfirgangi. Hollusta hans er engin. Aðrir ráðherrar komu af fjöllum. Strax á morgun hlýtur Ögmundur að afturkalla þetta einka-flipp hins hefnigjarna. 02 Sep 2010 17:09:31 GMT Furðufréttir fjárglæfra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14120 Furðulegar fréttir berast. Skilanefnd Landsbankans afskrifar 27 milljarða persónulega ábyrgð Björgólfs Thor Björgólfssoar á skuldum sínum. Fyrir þá upphæð hefði mátt afskrifa öll gengistryggð bílalán almennings og hluta af íbúðalánum. Hreiðar Már Sigurðsson og Kristján Arason komast upp með að ganga frá kúlulánum sínum án þess að borga krónu. Jóhannes Jónsson í Bónus fær 115 milljónir að gjöf frá Kaupþingi fyrir að vera ekki með leiðindi. Hann var búinn að vinna svo lengi hjá Bónusi og er svo fínn gaur, útskýrði brjálaði bankastjórinn í sjónvarpi. Við vitum með hverjum hjarta hans slær. 02 Sep 2010 16:02:22 GMT Árni Páll er svartur mínus http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14119 Jóhanna Sigurðardóttir fær þrjá plúsa í kladdann fyrir að reka Kristján Möller, Rögnu Árnadóttur og Gylfa Magnússon. Ekki bara óhæfir ráðherrar, heldur sköðuðu þau virðingu ríkisstjórnarinnar. Hún fær líka plús fyrir að fá Guðbjart Hannesson, sem hefur áður gert góða hluti. Jóhanna fær svo tvo mínusa fyrir að halda í Jón Bjarnason og Árna Pál Árnason, sem eru á sama plani og hinir brottreknu þrír. Svarti mínusinn er þó, að Árni Páll verður bankaráðherra. Hefur einmitt sýnt, að hann er hluti gamla og gerspillta Íslands, sálufélagi fjárglæframanna í bönkunum. Hann mun ekki siðvæða þá. 02 Sep 2010 12:32:07 GMT Síðustu dagar ráðherrans http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14118 Síðustu dagar Gylfa Magnússonar sem ráðherra eru skelfilegir. Landsbankinn afskrifaði 27 milljarða króna persónulega ábyrgð Björgólfs Thors á skuldum sínum. Jafnframt lofaði bankinn að lögsækja hann ekki. Frá þessu var gengið í samningi skilanefndar bankans og mesta fjárglæframanns Íslandssögunnar. Nú er kominn tími til að setja skilanefndir gömlu bankanna í gapastokkinn. Þær hafa hagað sér forkastanlega, en með þessu glæpaverki tekur steininn úr. Það var hlutverk Gylfa í ríkisstjórninni að hindra bankaspillinguna í að ganga aftur. Hann brást alveg. Ryðilagði um leið traust fólks á ríkisstjórninni. 02 Sep 2010 10:22:28 GMT Stjarnfræðilega dýr mistök http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14117 Barack Obama sagði i gær Íraksstríðið vera búið. Lét kyrrt liggja, að ekkert náðist af markmiðum stríðsins. Engin gereyðingarvopn fundust. Að minnsta kosti hundrað þúsund manns voru drepin, tvær milljónir eru landflótta og tvær milljónir eru heimilislaus. Allir kristnir menn hafa flúið landið. Öryggi er mun lakara en á tíma Saddam Hussein. Lítið fer fyrir umbótum á vestræna vísu. Olíuvinnsla er minni en fyrir stríð og rafmagn er af skornum skammti. Ríkisstjórnin er valdalítil og stjórnarkreppa hefur staðið í hálft ár. Kostaði Bandaríkin stjarnfræðilega upphæð, 90000 milljarða króna. 02 Sep 2010 06:07:09 GMT Grínistar og kvótagreifar http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14116 Um frystihúsin sagði Halldór Laxness: Spaugararnir reisa þau fyrir styrk frá ríkinu, síðan fá þeir styrk af ríkinu til að reka þau, þvínæst láta þeir ríkið borga allar skuldir en verða seinast gjaldþrota og láta ríkið bera gjaldþrotið. Ef svo slysalega vill til að einhverntíma kemur eyrir í kassann þá fara þessir grínistar út að skemta sér. Þá höfðu grínistar ekki enn fattað að veðsetja þjóðareignina. Nú hafa þeir fattað, eru meira gjaldþrota en nokkru sinni fyrr. Tími er kominn til, að ríkið hirði kvótann út úr gjaldþrotunum. Við þurfum enga fyrningarleið til að endurheimta auðlindina. 01 Sep 2010 18:19:49 GMT Hef áhyggjur af Sérstökum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14115 Hef áhyggjur af Sérstökum. Sé ekki, að Eva Joly haldi lengur í höndina á honum. Komin á kaf í franska pólitík, hefur misst áhugann á Íslandi. Það er skelfilegt, því að allt réttlæti á skerinu kemur að utan. Yfirstétt Íslands er óhæf eins og hún leggur sig. Hjá Sérstökum situr athugun á Landsbankanum á hakanum. Nýtur ósýnilegrar verndar, sem enginn getur klippt sundur. Nema útlendingurinn Eva Joly. Sem ekki er frændi neins. Ekki í klúbbi með neinum. Ekki í flokki með neinum. Og nýtur ekki peninga frá skúrkum. Getið þið kæru landsmenn ekki sent Joly bænarskrá um að koma aftur og kippa í Sérstakan. 01 Sep 2010 14:24:16 GMT Þáttaskil í mannréttindum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14114 Bezta breytingin á ríkisstjórninni er að fá loksins innanríkisráðherra, sem ekki er fasisti. Ögmundur Jónasson er alls ólíklegur til að styðja forvirkar aðgerðir gegn borgurum landsins. Eða að setja rafbyssur á fjárhagsáætlun lögreglunnar. Einkum þó er hann líklegur til að taka mildar á málefnum nýbúa og flóttamanna. Vonandi snýr hann upp á handlegg Útlendingastofnunar, sem hagar sér eins og argasti bófi. Þar þarf raunar að henda út tugum lagatækna, sem eru áskrifendur að kaupi. Mundi spara ríkinu langþráð fé. Með Ögmundi í innanríkisráðuneytinu verða vonandi þáttaskil í mannréttindum á Íslandi. 01 Sep 2010 10:31:48 GMT Farið hefur fé betra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14113 Ragna Árnadóttir hefur verið hægri sinnuð sem ráðherra, hlynnt lögregluríki Ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnunar. Í stíl Björns Bjarnasonar, átti ekki heima í þessari ríkisstjórn. Frábært að losna við hana. Gylfi Magnússon hefur staðið vörð um gamla bankakerfið. Hafnaði siðvæðingu banka og afnámi bankaleyndar. Frábært að losna við hann. Því miður er brottför þeirra of sein, skaðinn er að mestu skeður. Ríkisstjórnin hefur misst frumkvæðið og hrekst um brimgarða almenningsálits. Fólk telur réttilega, að hún hafði ekki stuðlað að nýju Íslandi í stað hins gamla, spillta. En farið hefur fé betra. 01 Sep 2010 07:28:23 GMT Björgólfur gerði ekki upp http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14112 Björgólfur Thor Björgólfsson er að því leyti verri en aðrir hrunverjar, að hann lýgur um uppgjör skulda. Segist hafa gert upp skuldir að upphæð 1200 milljörðum króna. Neitar auðvitað að svara, hvort hann hafi greitt. Það gerði hann nefnilega ekki, samdi bara um málið. Skilningur þjóðarinnar er, að uppgjör fjárglæframanna felist í, að þeir borgi skuldir sínar og skuldir fyrirtækja sinna. Ekki að þeir fái afslátt af skuldum. Ekki að hlutafélög séu undanþegin uppgjörinu. Þegar Björgólfur þykist hafa gert upp skuldir sínar, þá lýgur hann einfaldlega. Hefur blekkt marga, en þetta er of vírað. 31 Aug 2010 18:15:40 GMT Grunsamlegur stuðningur http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14111 Árni bæjó Sigfússon vill, að ríkið leigi aðstöðu á Keflavíkurvelli handa skrítnu fyrirtæki, sem á stríðsþotur. Tvennt er athugavert. Í fyrsta lagi er grunsamlegt, að fyrirtækið hefur reynt víðar að fá aðstöðu, en ekki fengið. Finna þarf, hvers vegna það var þar ekki velkomið. Þá fyrst er hægt að skoða málið. Í öðru lagi er grunsamlegt, að Árni skuli mæla með fyrirtækinu. Slík meðmæli óráðsíu-meistarans eiga að vera sjálfvirk ástæða til þess að fara varlega. Við skulum fá betri upplýsingar um fyrirtækið áður en við föllum fyrir enn einni kanínu sjónhverfingamannsins í gjaldþrota Reykjanesbæ. 31 Aug 2010 16:36:02 GMT Starfslok óreiðumanns http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14110 Sé ekki heila brú í að afhenda Jóhannesi í Bónus níutíu milljónir og tólf mánaða laun fyrir að fara. Gjaldþrota menn verða bara gjaldþrota án slíks. Hef bara aldrei heyrt um slíkt áður. Satt að segja er þetta glórulaust og sýnir, að stjórnendur Arion-banka eru tossar. Allt er athugavert við meðferð bankans. Fyrri eigendur fyrirtækja fá ekki starfslokasamning. Þeir eru ekki manna færastir til að reka fyrirtæki, þeir hafa sannað hið þveröfuga. Banki skuldar óreiðumönnum ekki eina krónu umfram það, sem þeir hafa áður haft af bankanum. Stjórnendur Arion eiga að vera á fjalli með hinum bjöllusauðunum. 31 Aug 2010 12:54:01 GMT Jónmundur var stöðvaður http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14109 Jónmundur Guðmarsson ætlaði sem bæjarstjóri á Seltjarnarnesi að græða eins og Árni Sigfússon í Keflavík. Varð meðeigandi og stjórnarmaður í fyrirtæki, sem vildi kaupa eignir hreppsins og leigja síðan hreppnum. Góðir menn sáu, hvað var að gerast og komu Jónmundi burt. Hann er núna forstjóri stærsta glæpafélags landsins. Árni fékk hins vegar að selja eignirnar og borgar núna leigu án þess að eiga aur fyrir henni. Hann ákvað líka að byggja álver, þótt ekki væri til rafmagn og enginn gæti kríað út lán fyrir því. Hann fékk góðan stuðning í kosningunum og nú er Reykjanesbær kominn verðskuldað á hausinn. 31 Aug 2010 09:43:02 GMT Stórfrétt: Lomborg skipti um skoðun http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14108 Frétt ársins birtist í morgun í Guardian. <a href=http://www.guardian.co.uk/environment/2010/aug/30/bjorn-lomborg-climate-change-u-turn>Bjørn Lomborg</a> hefur snúið við blaðinu. Frægasti andstæðingur aðgerða gegn loftslagsbreytingum segir núna, að stórauka þurfi framlög í baráttuna gegn breytingum af mannavöldum. Kemur fram í nýrri bók hans, sem væntanleg er í september. Af því tilefni tók Guardian viðtal við hann. Þar kemur fram, að mislukkaða loftslagsáðstefnan í Kaupmannahöfn fékk hann til að endurmeta málið. Nú þarf Friðrik Arngrímsson hjá landssambandi kvótagreifa að láta þýða nýju bókina eins og hina fyrri. Og nú getur Rajendra K. Pachauri hætt að líkja Lomborg við Adolf Hitler. 31 Aug 2010 05:19:14 GMT Orðhenglar Gnarristans http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14107 Stjórnarformaður Orkuveitunnar og Gnarristi hækkaði misjafnt hina ýmsu þætti þjónustunnar, sem Orkuveitan rukkar fyrir. Hækkaði lítið þá þætti, sem eru í samkeppni við aðra orkusala. En hækkaði þeim mun meira þá þætti, sem njóta skjóls einokunar. Þannig tryggir Haraldur Flosi Tryggvason, að fólk geti ekki vikið sér undan okrinu. Orðalag hans í sjónvarpinu sýnir, að hann er á sama báti og pólitíkusar. Notar orðhengilshátt til að sýna fram á, að svart sé hvítt. Haraldur Flosi hefur langa reynzlu í að níðast á almenningi sem yfirlagatæknir lögbrjótsins Lýsingar. Og líka reynslu af kennitöluflakki. 30 Aug 2010 18:40:03 GMT Vangefnar reglur hússins http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14106 Stundum er sagt, að ég taki of djúpt í árinni, þegar ég segi þjóðina vera vangefna. Það er rangt, ég dreg styttri stráin. Skoðið dæmi um bílstjóra, sem koma í Leifsstöð að sækja farþega fyrir hótel eða fyrirtæki. Þeir eru með spjald með nafni hótelsins eða fyrirtækisins, svo að farþeginn snúi sér til þeirra. Þá koma öryggisverðir Leifsstöðvar og segja bílstjórunum, að bannað sé að auglýsa í Leifsstöð. Vísa í reglur hússins. Þetta er gott dæmi um, að ráðamenn og öryggisverðir Leifsstöðvar stíga ekki í vitið frekar en aðrir Íslendingar. Þetta sama lýsir sér í afstöðu til IceSave og Gnarr-isma. 30 Aug 2010 15:30:35 GMT Braskfíkn bæjarstjórans http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14105 Árni Sigfússon bæjarstjóri hefur lengi verið á kafi í braski. Hefur falsað reikninga Reykjanesbæjar til að þeir sýni ekki gjaldþrot bæjarins. Gott dæmi um eiturlyf braskfíknar. Reykjanesbær lifir ekki, nema óskir rætist um álbræðslu, sem vantar innstungu fyrir rafmagn. Aðrir málsaðilar eru í sömu eiturvímu. Fjárfestu út á braskáráttu, standa núna ærulausir. Lándardrottnar hafa snúið baki við Reykjanesbæ eins og Orkuveitunni, Landsvirkjun og HS Orku. 1,8 milljarðar eru fallnir á Reykjanesbæ og verða ekki greiddir. Hver vill taka Árna á bakið og borga fyrir braskfíknina? Ég veit ekki um neinn. 30 Aug 2010 12:14:05 GMT Skjaldborg ráðamanna http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14104 Klemma pokaprestanna er ekki að hafa veitt fórnardýrum kirkjuskrímslisins ónóga hjálp eins og Hjálmar Jónsson heldur fram. Afsökun út af því stoðar lítt. Klemma þeirra felst í að hafa vitað um atferli skrímslisins og hafa samt slegið skjaldborg um það. Reynt að sannfæra konurnar um að falla frá aðgerðum gegn Ólafi Skúlasyni. Þeir voru partur af skjaldborg ráðamanna kirkju og þjóðar. Í þessari skjaldborg voru líka Davíð Oddsson og Vigdís Finnbogadóttir og aðrir hræsnarar yfirstéttarinnar. Karl Sigurbjörnsson og Hjálmar Jónsson eiga að biðjast afsökunar á aðild sinni að skjaldborginni. 30 Aug 2010 09:02:04 GMT Tíminn stendur kyrr http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14103 Annað hvort er ég orðinn magur eða Ítalía feit, því að nú er pláss í bekkjum og stólum. Því get ég fylgt afastrákunum, sérfræðingum í pitsum og pöstum, sem segja þær svaka góðar á Ítalíu. Appelsín-glösin taka líka hálfan lítra og svo er íspinni ókeypis í eftirrétt. Fékk mér fisk dagsins að venju. Lúðan var fín, matreiðslan eins og fyrir rúmu ári. Smálúða með sveppum og blaðlauk í hvítvíns-rjómasósu og hvítum kartöflum. Tíminn stendur hér kyrr. Þröngur og notalegur og ætíð fullsetinn. Mikið skvaldur, ekta ítalskt. Gæðin traust, enda stjórna hér Ítalir. Pítsur og pöstur kosta 2350 krónur, fiskur 3250. 30 Aug 2010 05:21:02 GMT Samfylkingin ekki stjórntæk http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14102 Samfylkingin tekur formlega séð þátt í að hreinsa skítinn eftir sig frá stjórn Ingibjargar Sólrúnar. Hefur samt ekki misst trú á forsendu hrunsins, Blair-ismanum. Félagsráðherra treður hrunverjum í kerfið. Orkuráðherra telur enn, að stóriðja sé frábær. Leitun er að náttúruvænni hugsun í fremstu röð Samfylkingarinnar. Telur unnt að brúka fasista í innanríkisráðuneytinu og bankaleyndarsinna í bankaráðuneytinu. Þótt Steingrími takist að rétta við ríkisfjármálin, er siðvæðing ríkis og banka meira eða minna í lamasessi. Og Samfylkingin nær engu sambandi við þjóðina í skuldum fólks og málum Evrópu. 29 Aug 2010 19:26:31 GMT Kemur ævinlega af fjöllum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14101 Gylfi Arnbjörnsson kemur ævinlega af fjöllum, þegar rætt er um afleiðingar gerða hans. Kvartar yfir verðhækkun á rafmagni. Stafar samt af linnulausri kröfu hans um boranir Orkuveitunnar um alla Hellisheiði. Til að halda uppi atvinnu við boranir. Orkuveitan safnaði skuldum vegna þessa og getur ekki borgað þær með nýjum lánum. Gylfi gengur lengra en flestir aðrir í þrammi af fjöllum. Hefur breytt Alþýðusambandinu í baráttustofnun fyrir nýjum og nýjum álbræðslum. Til þess eins að efla atvinnu Kínverja og Portúgala, samanber Kárahnjúka. Sú virkjun markaði tímamót í brotthvarfi Alþýðusambandsins frá hagsmunum alþýðunnar yfir til hagsmuna atvinnurekenda, einkum álbræðslna. 29 Aug 2010 15:10:11 GMT Kunna ekki fótum sínum forráð http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14100 Íslendingar eru sömu fávitarnir og Bandaríkjamenn. Þeir halda, að Barack Obama sé múslimi. Við viljum fá Sjálfstæðisflokkinn til valda. Þeir halda, að Barack Obama hafi framleitt vandræði, sem urðu til á valdatíma Bush. Við kennum ríkisstjórninni um ófarir okkar, þótt þær hafi orðið til á valdatíma Geirs H. Haarde. Þegar stjórnarskrá gerir ráð fyrir lýðræði, er augljóst, að illa fer. Lýðurinn kann aldrei fótum sínum forráð. Hann tryllist bara á kjörstað. Hafnar IceSave, kýs Jón Gnarr. Bara nefnið hugarburðinn, þjóðin styður hann heils hugar. Menn trúa jafnvel, að Evrópa sé verri en ísland. 29 Aug 2010 10:52:57 GMT Vestan við syðri fótinn http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14099 Guugu Ymithirr er nýfundið mál frumbyggja nyrzt í Queensland í Ástralíu. Þar nota menn ekki persónuleg viðmið, þegar þeir segja til vegar. Segja ekki: Beygðu til hægri. Þeir segja: Beygðu í austnorðaustur. Eða: Paddan er vestan við syðri fót þinn. Þeir nota seguláttirnar. Sem fararstjóri í hestaferðum veit ég, að það er betra. Stundum þarf að fara í öfuga átt við leiðbeiningu. Þá er betra að vita um austur en um hægri. Í þoku dugir ekki að stefna á miðjan Eiríksjökul, betra er að fara suðsuðvestur áttavitann. Í gagnabanka mínum um 800 reiðleiðir á Íslandi nota ég ætíð vegalýsingar Guugu Ymithirr. 29 Aug 2010 07:42:45 GMT Alþýðusambandið skaðar fólkið http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14098 Forseti Alþýðusambands Íslands er einn hrunverja. Gylfi Arnbjörnsson hefur árum saman heimtað örari álbræðslur. Af hans völdum og fleiri slíkra fóru Landsvirkjun, Orkuveitan og HS Orka fram úr sér. Framkvæmdu grimmt fyrir fé, sem fyrirtækin áttu ekki. Landsvirkun býður út Búðarháls, Orkuveitan borar vítt og breitt um Hellisheiði, veitir arseniki og brennisteini á Hveragerði. HS Orka kaupir túrbínur. Engum þeirra er treyst fyrir fé, enda öll tæknilega gjaldþrota. Langvinnt garg Gylfa hrunverja er ein helzta forsenda þess, að Orkuveitan hækkaði rafmagn til þín um 28,5%. Alþýðusambandið skaðar fólkið. 28 Aug 2010 22:32:15 GMT Þjóðarhagur af álbræðslum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14096 Nú finnið þið á eigin skinni þjóðarhaginn af álbræðslum. Þær hafa komið Landsvirkjun, Orkuveitunni og HS Orku á hausinn. Orkuveitan var fyrst að rúlla. Hefur nú verið bjargað fyrir horn með 28,5% hækkun á almennum notendum. Það dugar ekki og meiri hækkun kemur á næsta ári. Þessu veldur útþensla Orkuveitunnar og boranir á Hellisheiði án erlends lánstrausts. Landsvirkjun fær ekki heldur gjaldeyri til að reisa Búðarháls, en gerir það samt. Hún á eftir að senda ykkur reikninginn. HS Orka keypti túrbínu út í loftið á kostnað orkunotenda. Allt til að geta gefið álbræðslunum rafmagn. 28 Aug 2010 22:31:45 GMT Rengir ekki trúverðugan guð http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14097 <a href=http://www.dv.is/blogg/tresmidja/2010/8/27/ny-truarjatning-karls-biskups/ >Illugi</a> Jökulsson er með allt á hreinu um nýja trúarjátningu hins þaulsætna biskups: "Ég rengi ekki tilveru Guðs föður, skapara himins og jarðar. Mér finnst trúverðug sagan um Jesú Krist " 28 Aug 2010 17:04:23 GMT Sigurður rífur bara kjaft http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14095 Sirkusinn er á fullu. Sigurður Einarsson rífur kjaft og bendir á Geir Haarde og Davíð Oddsson. Þannig verða næstu árin. Höfuðpaurar hrunsins neita allri sök og benda hver á annan. Við vitum betur. Við vitum, að þeir eru margir. Þeir eru Davíð og Geir, Björgólfur Thor og Jón Ásgeir, Sigurjón Þ. Árnason og Sigurður Einarsson, Pálmi Haraldsson og Ólafur Ólafsson, Karl Wernersson og Lýður Guðmundsson. Kannski bara þessir tíu menn, kannski nokkrir fleiri. Störfuðu í skjóli siðlausra stétta lagatækna, excel-tækna og bókhaldstækna. Þetta eru óargadýrin. Við þurfum að koma þeim öllum sem fyrst á Litla-Hraun. 28 Aug 2010 09:50:02 GMT Aðlögun er langt komin http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14094 Aðlögun Íslands að Evrópusambandinu hefur skeiðað árum saman. Aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu felur í sér, að fjöldi manna hefur árum saman þýtt evrópskt regluverk á íslenzku. Að vísu hafa íslenzkir embættismenn lesið regluverkið eins og andskotinn les biblíuna. En samt hafa allar framfarir í stjórnsýslu orðið í kjölfar þýðinga. Aðlögunin heldur áfram, þótt við gerumst ekki aðilar að Evrópusambandinu. Að lokum verður hún nánast 100%. Að öðru leyti en því, að við fáum engan atkvæðisrétt án aðildar. Sem er eins gott, við getum fátt lagt þar fram til góðs, alræmt gerræðisfólk í norðri. 28 Aug 2010 05:40:40 GMT Ofstæki bankastjóra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14093 Fæ daglega tækifæri til að furða mig á dálæti bankastjóra á fjárglæframönnum að hætti 2007. Geng um garða á World Class á Seltjarnarnesi, þar sem viðhald er ekkert. Sami drullupollurinn er á gólfinu í tvö ár samfleytt. Sánan er brotin, sturturnar án hausa. Björn Leifsson tímir ekki einu sinni að setja upp skógeymslu. Ég fer þangað samt, því að ég bý í nágrenninu, en skammast mín alltaf fyrir. World Class er bara lítið dæmi um ofstæki bankastjóra, sem ríkið setti inn í stað bankabófanna. Geta ekki með nokkru móti séð, að fjárglæframenn Davíðstímans eru sannanlega óhæfir um að reka fyrirtæki. 27 Aug 2010 18:31:16 GMT Arsenik í Ölfusi http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14092 Heilbrigðiseftirlit Suðurlands varð frægt um daginn fyrir sljó viðbrögð við dælingu seyru í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hefur ekki heldur áhuga á að kanna arsenik-eitrun við Hveragerði. Ekki heldur rannsóknastöðin á Keldum, sem á furðulegan hátt týndi sýnum úr tveimur kúm. Þær höfðu drepizt úr arsenik-eitrun á svæðinu. Eigendur kúnna höfðu greind til að senda sýni til Bandaríkjanna. Þau staðfesta arsenik-eitrun. Sennilega kemur hún úr borholum Orkuveitunnar á Hellisheiðarsvæðinu, rétt eins og brennisteinseitrunin. Menn þegja um þetta eins og mannsmorð, því að álvers-ofstækið heimtar virkjanir. 27 Aug 2010 15:25:39 GMT Glórulaust Undraland http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14091 Landsvirkjun opnar tilboð í Búðarhálsvirkjun án þess að hafa fengið lán til verksins. Enginn vill lána og hún rambar á barmi gjaldþrots, Lamin áfram af álverssjúkum hrunverjum Sjálfstæðis og Framsóknar. Eins er um Orkuveituna. Réðist í boranir um alla Hellisheiði án þess að geta fengið virkjunarlán. Lamin áfram af álverssjúkum hrunverjum. Eins er um HS Orku. Keypti rándýra túrbínu í orkuver, sem hún getur ekki fengið lánað fyrir. Norðurál lifir í þessu Undralandi og reisir álver í Helguvík út á ofstæki hinna álverssjúku. Heimtar svo skaðabætur af gjaldþrota stofnunum með glórulausum forstjórum. 27 Aug 2010 12:49:52 GMT Spilltur Árni Páll óhæfur http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14090 Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur mánuðum saman verið frosin. Getur ekki ráðið þá, sem úrskurðuð var hæfust, Ástu H. Bragadóttur. Árni Páll Árnason ráðherra reynir að troða inn ráðgjafa sínum, bankabófanum Yngva Erni Kristinssyni. Greip í gær til örþrifaráðs, handvaldi nefnd til að ráða Yngva Örn framhjá stjórn sjóðsins. Stjórnartuskan lét það yfir sig ganga. Ásta H. Bragadóttir dró þá umsókn sína til baka. Ógeðslegasta verk illa þokkaðs ráðherra, sem hefur ýmislegt fleira á samvizkunni. Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekki ráð á að leyfa spilltum ráðherra óhæfum að reyta áfram fylgið af ríkisstjórninni. 27 Aug 2010 09:49:36 GMT Biskupinn segi af sér http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14089 Karl Sigurbjörnsson biskup er svo sljór, að hann lætur mynda sig framan við málverk af skrímsli þjóðkirkjunnar. Svo sljór, að til skamms tíma taldi hann sig geta logið um afskipti sín af málum óvættarins mikla. Þjóðin hefur séð konurnar tala af einlægni í Kastljósi og trúir þeim. Trúir, að Karl biskup, Hjálmar Jónsson prestur og fleiri klerkar hafi reynt að kúga konurnar til uppgjafar. Þótt þeir hafi á sama tíma vitað um ógnir forverans. Hjálmar er týndur, en Karl er enn biskup. Hræddur pokabiskup í undanbrögðum veldur ekki embættinu. Hann þekkti ekki sinn vitjunartíma og verður að segja af sér. 27 Aug 2010 05:27:52 GMT Losið okkur strax við Gylfa http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14088 Stjórn Gylfa Magnússonar á bankaráðueytinu er engin. Spillingin veður uppi í fjármálastofnunum sem aldrei fyrr. Bankasýsla ríkisins gerir nákvæmlega ekki neitt. Bankastjórar eru sannfærðir um, að gjaldþrota fjárglæframenn séu þeir einu, sem geti rekið fyrirtæki. Ríkisstyrktir bankar velta kúlulánum sinna smákónga fram í endalausa framtíð. Skilanefndir og slitastjórnir borga sér sex-sjö milljónir króna í mánaðarlaun. Í guðanna bænum losið þjóðina undan ánauð Gylfa Magnússonar. Hann er umboðsmaður þeirra, sem komu okkur á hvolf. Hann sér um, að svindl og svínarí fái áfram að blómstra í fjármálastofnunum. 26 Aug 2010 18:41:07 GMT Sjálftekt bankabófa http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14087 Skilanefndir, slitastjórnir og lagatæknar þeirra skammta sér laun upp á sex til sjö milljónir króna á mánuði. Gera það í skjóli þess, að enginn hefur yfir þeim að segja. Sjálftektin sýnir nákvæmlega sama hugarfar og þeirra, sem ollu hruninu með taumlausri græðgi. Í stað bankstera eru komnir aðrir jafngildir bófar. Glæpahneigðina sýnir skilanefnd Glitnis með að ráða sér framkvæmdastjóra einmitt þann, sem Fjármálaeftirlitð rak úr nefndinni. Bófar sjálftektar haga sér eins og þeim sýnist. Enda eru Fjármálaeftirlitið og Bankasýslan einskisnýt apparöt. Eins ónýt og Gylfi Magnússon bankaráðherra. 26 Aug 2010 15:57:16 GMT