Palazzo Dario
Handan Canal Grande er rómantísk höll.
Framhlið Palazzo Dario er ekki sammiðja, heldur er gluggahlutinn úti í öðrum kantinum. Þetta er ein elzta höll borgarinnar í endurreisnarstíl, frá 1478. Hringgluggarnir með ytra hring minni hringglugga grípa athygli augans, einnig hin fagurlita marmaraklæðning.
Þjóðtrúin segir, að eigendur hallarinnar lendi í ógæfu, og rekur því til stuðnings dæmi, sem ná fram til ársins 1992.
Næstu skref