Kovulenko slapp óséður

Punktar

Meðan 58 löggur voru að ofsækja hælisleitendur í gærmorgun fór þekktur ofbeldismaður óséður gegnum Leifsstöð. Ivan Kovulenko er efirlýstur vegna stórfelldrar líkamsárásar við Snorrabraut um helgina. Hann kom sér í flugi til London. Þegar samanlagt löggulið suðvesturhornsins var að dunda sér við að kvelja auma hælisleitendur. Meðan löggurnar hirtu löglega peninga af hælisleitendum gaf Kovulenko löggunum langt nef. Einn mesti ofbeldismaður landsins leikur nú lausum hala úti í heimi. Hér skipta ofbeldismenn engu máli í samanburði við hælisleitendur. Sem eru taldir óvinir ríkisins nr. 1.