Þeir fylgja greifanum

Punktar

Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að klofna og þar eru ekki þrjár fylkingar að berjast. Það er bara óskhyggja. Þar er enn síður til sveit “umbótasinna”. Vissar ýfingar eru milli leifanna af veldi Davíðs og alls þorra þegnanna. Davíð gargar á torgum úti. Þorsteinn gefur Davíð gúmoren. Annað er það nú varla. Kannski mannar Geir sig í að koma Birni úr ríkisstjórninni. En ég held tæpast, að hann manni sig upp í neitt. Þetta er ekki flokkur eins og Frjálslyndir, þar sem menn berjast. Þetta er stofnun, sem fylgir greifa sínum, unz nýr greifi er kjörinn. Il Duce er linur núna, en fellur ekki.