Davíð verður að víkja

Punktar

Engum seðlabankastjóra heims hefði dottið í hug að fara í pólitík. Með því að stinga upp á þjóðstjórn og þjóðnýtingu allra banka. Nema Davíð Oddssyni. Hann ætlar ekki að gera það endasleppt. Sem forsætis bjó hann til frjálsa banka án regluverks og eftirlits. Sem Seðlabankastjóri hefur hann hámarkað tjónið af því. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur slegið á putta Davíðs og Geir Haarde tekið undir það. Gjaldþrota þjóð er ekki stætt á að hafa kreppu-framleiðanda í sæti Seðlabankastjóra. Davíð verður að víkja. Líka aðstoðarstjórar hans, sem hafa hleypt honum út að ólátast um víðan völl.