Liðónýtir fjölmiðlar

Punktar

Enginn fjölmiðill hefur sagt rétta upphæð láns Kaupþings hjá Seðlabankanum. Enginn þeirra hefur upplýst, hvers vegna Geir Haarde ætlaði að halda henni leyndri. Enginn hefur upplýst, hver leyfði Landsbankanum að veðsetja Ísland fyrir innlánum í IceSave. Enginn hefur upplýst, hvers vegna krimmarnir eru endurráðnir forstjórar bankanna. Þeir, sem lugu frítt um stöðu bankanna og veðsettu þjóðina upp í útrás sína. Fjölmiðlar hafa birt mikið efni, en ekki svarað átakanlegum spurningum. Íslenzkir fjölmiðlar eru liðónýtir til síns brúks, ríkisfjölmiðlarnir jafnt sem fjölmiðlar fyrrverandi burgeisa.