Mig langar til að benda á þrjú næturblogg. Baldur McQueen rekur hryðjuverk íslenzkra ráðamanna gagnvart Bretum. Þar kemur fram, að þrír eru terroristarnir. Össur Skarphéðinsson, Árni Mathiesen og Davíð Oddsson. Pétur Tyrfingsson rekur muninn á hjálp og áfallahjálp. Nákvæmlega það, sem ég vildi segja, þegar ég hlustaði á lýðheilsumanninn í sjónvarpinu í gærkveldi. Áfallahjálp er skaðleg, dregur úr getu ykkar til að taka málin í eigin hendur. Loks er búið að opna síðuna Apology from Iceland á blogspot. Þar kemur fram, hvað nýr forsætis á að segja.