Fjármálum Íslands verður ekki bjargað með Davíð Oddssyni í Seðlabankanum. Hann er gereyðingarvopn. Groddatal hans er þjóðinni fjárhagslega ofviða, svo sem boðuð vanskil og boðað rússagull. Hindraði jafnvel sinfóníuferðina. Sjálfstæðisflokkurinn tekur ábyrgð á Davíð og neitar að láta hann fjúka. Þar með er Flokkurinn líka orðinn að þjóðarvanda. Fjármálum þjóðarinnar verður þannig aldrei bjargað með Flokknum í ríkisstjórn. Flokkurinn og Davíð eru síamstvíburar hrunsins. Geir Haarde þarf nú að safna kjarki.