Þú ert hæddur og smáður. Hlegið er að þér. Þú trúðir álfasögum um snilli sjónhverfingamanna í fjárglæfrum. Þú trúir, að Gordon Brown hafi búið til hrunið. Þú eyddir og spenntir, sumpart á myntkörfulánum. Þú sparaðir, sumpart í ævintýrasjóðum fjárglæframanna. Núna ertu hissa, að þetta skuli flest vera glatað. Ríkisstjórnin lofar, að hún bæti þér skaðann, en hún mun ekki standa við það. Það er eðli pólitíkusa að ljúga. Þú ert gjaldþrota. Þú þorir ekki út í heim, kortin verða kannski klippt og þér kastað út úr mollinu. Sættir þig líka við, að brennuvargarnir séu áfram í brunaliðinu.