Misjöfn vitfirringahæli

Punktar

Munurinn á Bandaríkjunum og öðrum vitfirringahælum er, að í Bandaríkjunum stjórna vitfirringarnir. Ofsatrúarklerkur særði anda af illum elgi úr líkama Sarah Palin. Við sama tækifæri var hættum frá vinstri sinnuðum galdranornum bægt frá Palin með særingum. Palin vill brenna bækur og trúir, að jörðin hafi orðið til fyrir 6000 árum. George W. Bush lætur stjórnast af óvenjulega heimskum ráðgjöfum. Hverra heimsku Fred Kaplan álitsgjafi rekur í bókinni “Daydream Believers”. Bandarísk pólitík er furðuleg blanda af heimsku og geðveiki og ofsatrú. Á Íslandi þarf bara að glíma við heimskuna.