Farðu heim brennuvargur

Punktar

Farðu heim Geir, þú ert brennuvargur eins og Davíð, leiðtogi lífs þíns. Í mánuð hefur þú þindarlaust logið að okkur. Þú flýrð daglega úr einu virki lyginnar í annað. Markmið þitt er að hindra vitneskju fólks. Þú þarft á hverjum degi að bakka með fyrri lygar. Þú gerir það með nýjum lygum. Nú síðast þeirri, að Sjóðurinn mikli heimti leyndó. Hann gerir það ekki, það varst þú, sem heimtaðir leyndó. Frá upphafi varstu sem fjármálaráðherra einn af brennuvörgum nýfrjálshyggjunnar. Sem getur samt ekki hindrað, að sannleikurinn komi í ljós. Fólk sér, að þú selur börn þess í ánauð. Hættu.