Verkalýðsrekandinn Gunnar Páll Pálsson var í sviðsljósi næturbloggsins. Einn ofurlaunamanna samfélagsins með 1.700.000 krónur á mánuði sem formaður verzlunarmanna. Sem slíkur er hann í stjórn Kaupþings. Fremur þar tvöfaldan glæp. Hann samþykkir tuga milljarða króna rán hjá bankanum í þágu fínustu starfsmanna bankans. Hann ver gerninginn með því, að annars hefðu opinberir eftirlitsaðilar komizt að hinu sanna. Hann mismunar hluthöfum og lánþegum í fyrsta lagi. Í öðru lagi reynir hann að hafa áhrif á verð hlutabréfa með þessari mismunun. Gunnar Páll er landsins grófasti verkalýðsrekandi.