Bjarni með rýtinginn

Punktar

Mér er hlýtt til Guðna Ágústssonar, hann er svo skemmtilegur. Hef hins vegar aldrei skilið, hvað hann er að gera með greyið Bjarna með sér í kjördæminu. Nú hefur Bjarni framið pólitískt harakiri með ógeðsbréfi, sem hann samdi og lét senda til Valgerðar Sverrisdóttur. Hjálparmaður hans gleymdi svo að klippa burt nákvæm fyrirmæli Bjarna um, hvernig það skyldi sent nafnlaust og skyldi “óvart” lekið til fjölmiðla. Bjarni er maður, sem telur sig kunna að reka rýting í bak fólks. En allt er á sömu bókina lært hjá honum.