Sjö nafngreindir ábyrgðarmenn

Punktar

Hápunktur hrunsins eru IceSave reikningarnir, sem rændu þjóðina mannorði sínu. Fremstir illmenna fóru þar Bjöggarnir, Björgólfur Thor Björgólfsson og Björgólfur Guðmundsson. Svo og bankastjórar þeirra, Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason. Rændu þjóðina hundruðum milljarða og mannorði hennar þar á ofan. Samt ganga þeir enn lausir. Einnig ganga lausir Davíð Oddsson og Jónas Fr. Jónsson, sem áttu að passa upp á krimmana. Loks ganga lausir Davíð Oddsson og Geir H. Haarde, er bjuggu til nýfrjálshyggju bankanna, sem er rót vandans. Bara örfá nöfn, sem nú ættu að hverfa úr landi til friðþægingar.