Hvers vegna skauzt Ásmundur Stefánsson á leynifund í Landsbankanum með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni á laugardaginn? Full ástæða er til að hafa áhyggjur af félagsskap hins nýja eftirlitsmanns ríkisstjórnarinnar. Af hverju skauzt Ásmundur ekki á fund með þér og mér, alþekktum skilamönnum? Getum við ekki gefið betri ráð? Hvers vegna telur nýi eftirlitsmaðurinn ástæðu til að þinga persónulega með útrásarvíkingum? Það eykur ekki traust fólks á eftirliti stjórnvalda. Sem var raunar ekkert fyrir leynifundinn.